Sóldalhestar

Ræktun og Sala

N/A Blog|BlogsInYearMonth: 2009 N/A Blog|Month_6

27.06.2009 09:47

Venus frá Meðalheimi

Jæja loksins sá ég um daginn hvaða kyn er á folaldinu hennar Vindu frá Gröf, og það er hestur, þannig ég fór strax að leyta að nafni á hann og fékk samþykki um að hann fengi að heita Venus. Ég held ennþá stíft í þá von um að hann verði einhvern veginn vindóttur, en fróðir menn segja að folöld sem verða vindótt fæðast mjög ljós, og við þessar fréttir fór ég að efast, en ef einhver þarna úti veit betur má hann alveg upplýsa mig um litin á honum Venus mínum.

Við erum þá búin að fá okkar folöld þetta árið og erum hæst ánægð, fengum 3 hryssur og 3 hesta, Prúðs afkvæmin eru gullfalleg og afkæmin undan honum Granda eru alveg glæsileg :)

18.06.2009 10:26

Tvö folöld í nótt

Þær Vinda og Perla köstuðu á sama degi í fyrra og þær hafa haldið þeim sið núna líka og köstuðu í nótt, Perla kom með rauðblesótta hryssu en hún Vinda verður alltaf svo rosalega mikil mamma þegar hún er köstuð að það er mjög erfitt að nálgast hana, þannig við vitum ekki hvort hún er með hryssu eða hest, við erum reyndar ekki alveg viss með litinn á folaldinu heldur, en við erum að gera okkur vonir um að það sé jarpvindótt. Afkvæmi Vindu er undan Prúð frá Gröf en afkvæmi Perlu er undan Vin frá Gröf.


Perla


Vinda

Við setjum nú betri myndir af folaldinu hennar Vindu hérna inn þegar hún verður orðin rólegri.

17.06.2009 15:13

Brún meri undan Rún

Í dag fæddist brún hryssa undan Rún frá Hrísum II og Granda frá Skipaskaga.

Við ákváðum að hún fengi nafnið Rán.

Hún Rán er stór og falleg, en við vorum nú ansi svekkt að hafa misst af því þegar merin kastaði, við skruppum aðeins upp á fjall að girða og vorum í sirka klukkutíma, og það var nóg, hún var köstuð rétt við bæjardyrnar þegar við komum heim um fimm leitið í dag, alveg tíbiskt.



    Today's page views: 345
    Today's unique visitors: 42
    Yesterday's page views: 409
    Yesterday's unique visitors: 70
    Total page views: 302584
    Total unique visitors: 64079
    Updated numbers: 7.2.2012 23:17:00

    Menu

    Newest

    • New site for the foals, but only on Icelandic yet. Look here
    • New pictures of Nátthrafn frá Tungu. Look here
    • Updating sale horses list. 
    Our most interesting sale horses at the moment...
     
    • Ringo is a palomino stallion born 2009, he goes on beautiful trot with big steps..

     

    • Nátthrafn Is a black gelding with a star, he is beautiful and easy to ride. He goes on soft tölt and good trot, he is 11 years old, good horse for young riders. Link to more pictures

    • Vera Is a black mare, she has a nice character and goes on soft and clear tölt



    For more information Click here.

    Our Photostream


    Many nice pictures from Iceland

     

    Sóldalhestar

    Name:

    Sigríður Sóldal, Jóhann Ingi og Sölvi Freyr

    Cell phone:

    8676206

    Address:

    Hólar Helgafellssveit

    Location:

    340 Stykkishólmur

    Links

    Topplistinn

    EquiGaia:
    Horses for Sale


    Topplistinn


    Norsk síða


    Þýskur hestamarkaður

    Helluskeifur



    Gaurarnir, festingar fyrir hestakerrur og tjaldvagna










    Kíkið hér