|
Sóldalhestar Ræktun og Sala |
|||||
Færslur: 2009 Júní27.06.2009 09:47Venus frá MeðalheimiJæja loksins sá ég um daginn hvaða kyn er á folaldinu hennar Vindu frá Gröf, og það er hestur, þannig ég fór strax að leyta að nafni á hann og fékk samþykki um að hann fengi að heita Venus. Ég held ennþá stíft í þá von um að hann verði einhvern veginn vindóttur, en fróðir menn segja að folöld sem verða vindótt fæðast mjög ljós, og við þessar fréttir fór ég að efast, en ef einhver þarna úti veit betur má hann alveg upplýsa mig um litin á honum Venus mínum. Við erum þá búin að fá okkar folöld þetta árið og erum hæst ánægð, fengum 3 hryssur og 3 hesta, Prúðs afkvæmin eru gullfalleg og afkæmin undan honum Granda eru alveg glæsileg :) Skrifað af Sigríður Sóldal 18.06.2009 10:26Tvö folöld í nóttÞær Vinda og Perla köstuðu á sama degi í fyrra og þær hafa haldið þeim sið núna líka og köstuðu í nótt, Perla kom með rauðblesótta hryssu en hún Vinda verður alltaf svo rosalega mikil mamma þegar hún er köstuð að það er mjög erfitt að nálgast hana, þannig við vitum ekki hvort hún er með hryssu eða hest, við erum reyndar ekki alveg viss með litinn á folaldinu heldur, en við erum að gera okkur vonir um að það sé jarpvindótt. Afkvæmi Vindu er undan Prúð frá Gröf en afkvæmi Perlu er undan Vin frá Gröf. Perla Vinda Við setjum nú betri myndir af folaldinu hennar Vindu hérna inn þegar hún verður orðin rólegri. 17.06.2009 15:13Brún meri undan RúnÍ dag fæddist brún hryssa undan Rún
frá Hrísum II og Granda frá Skipaskaga. Við ákváðum að hún fengi nafnið Rán. Hún Rán er stór og falleg, en við vorum nú ansi svekkt að hafa misst af því þegar merin kastaði, við
skruppum aðeins upp á fjall að girða og vorum í sirka klukkutíma, og það var
nóg, hún var köstuð rétt við bæjardyrnar þegar við komum heim um fimm leitið í
dag, alveg tíbiskt.
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 58 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 64 Samtals flettingar: 348492 Samtals gestir: 70989 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 15:44:35 |
Newest Our most interesting sale horses at the moment...
For more information Click here.
Eldra efni
Sóldalhestar Nafn: Sigríður Sóldal, Jóhann Ingi og Sölvi FreyrFarsími: 8676206Tölvupóstfang: soldalhestar@soldalhestar.comHeimilisfang: Hólar HelgafellssveitStaðsetning: 340 StykkishólmurTenglar
Topplistinn EquiGaia: Horses for SaleÞýskur hestamarkaður
Helluskeifur Gaurarnir, festingar fyrir hestakerrur og tjaldvagna Kíkið hér |
||||