|
Sóldalhestar Tamning, þjálfun, sala og reiðkennsla |
|||||
Ræktunarhross
Allar merarnar sem við notum eru tamdar nema ein, það er hún Vinda frá Gröf og hana eignuðumst við þegar hún var orðin frekar fullorðin og var þess vegna ekki farið í að temja hana, hún er hinsvegar móvindótt og hefur gefið okkur 3 afkvæmi og þau hafa verið mjög spennandi og ekki erfið í meðhöndlun.
Drift frá Oddhól IS1997286051 Drift frá Oddhól er undan Loga frá Skarði (A:8,40 B:8,23 H:8,57 )og Dömu frá Grundarfirði (A:8,04 B:8,13 H:7,96). Drift er rauðblesótt glófext falleg klárhryssa með góðan fótaburð og skemmtilegan gang. Afkvæmi: Draumur ´08 F: Nn undan Geisla frá Sælukoti(A:8,28 B:7,85 H:8,57) F: Prúður frá Gröf
Sumarið 2010 fór Drift undir þriggja vetra folann Sinfjötla frá Ósi
![]() Rún frá Hrísum II SELD Rún frá Hrísum II er fimm vetra hryssa undan fyrstuverðlauna graðhestinum Gáska frá Nípukoti (A:8,02 B:7,83 H:8,15 ) og Gloríu frá Efri-Fitjum. Rún er alhliða hryssa með gott geðslag, hún fór undir graðhestinn Granda frá Skipaskaga sumarið ´08 sem er þriggja vetra en var sýndur í byggingardóm og fékk 8,57 enda ansi myndarlegur gripur á ferð Afkvæmi
F: Grandi frá Skipaskaga
Rún fór ekki undir hest sumarið 2009, hún kemur inn næsta vetur í þjálfun
![]() Ilmur frá Sauðárkrók Ilumr frá Sauðárkrók er í eigu Hrafns og Karenar en þau eru tvö af börnum Jóa. Ilmur er undan Lysing frá Djúpadal og Flugu frá Sauðárkróki. Ilmur er hágeng klárhryssa með góðan fótaburð og æðislegt geðslag. Afkvæmi:
F: Grandi frá Skipaskaga
F: Prúður frá Gröf
Ilmur fór undir Sinfjötla frá Ósi sumarið 2010
Skíma frá Köldukinn Skíma er mósótt fædd 1995 undan Snævari frá Ytra Skörðugili og Prinsessu frá Hvassagili. Skíma er klárhryssa með skemmtilegan fótaburð, hún er falleg og geðgóð.
Afkvæmi:
F: Eldur frá Leysingjastöðum
![]() Ff: Stígandi frá Leysingjastöðum(A:8,27 B:8,00 H:8,45)
F: Prúður frá Gröf
Skíma fór undir Sinfjötla frá Ósi sumarið 2010
Perla frá Víðidalstungu II IS1989255055 Perla er undan Segul frá Sauðárkrók, sem er Hervars sonur, og Kviku frá Grafarkoti. Perla er gangmikil og mjög falleg alhliða hryssa, hún er faxprúð og hefur gefið falleg og töltgeng afkvæmi Afkvæmi: F: Vörður frá Miðsitju
Ff: Spuni frá Miðsitju
Drómi ´08 F: Geysir frá Flögu
Ff: Gammur frá Steinnesi
F: Vinur frá Gröf
Ff: Gáski frá Nípukoti
F: Valur frá Höskuldsstöðum
Perla fór undir þriggja vetra folann Sinfjötla frá Ósi
![]() ![]() Vinda frá Gröf
Vinda er eina ótamda hryssan í ræktuanrhópnum en hún fer um á flottu svifmiklu brokki með mikið rými, og virðist sem afkvæmin erfi þá eiginleika frá henni. Vinda er móvindótt eins og nafnið ber til kynna. Vinda er undan Storm frá Enni og Irpu frá Gröf. Afkvæmi: F: Gáski frá Nípukoti Ff: Gassi frá Vorsabæ F: Geysir frá Flögu Ff: Gammur frá Steinnesi F: Prúður frá Gröf Ff: Vörður frá Miðsitju F: Prúður frá Gröf Vinda fór undir Sinfjötla frá Ósi ![]() Fluga frá Borgarhóli Fluga er 5 vetra rauðblesótt fimmgangshryssa. Fluga er mikið rúm á gangi og skemmtileg, þæg en viljug. Afkvæmi: Flóki frá Meðalheimi ´10 F: Prúður frá Gröf Flugu er ekki haldið sumarið 2010. Planið er að taka hana inn í vetur og temja hana meira.
Skvísa frá Stóra-Langadal Skvísa er 5 vetra rauð skemmtileg og mjög falleg meri, hún er ekki mikið tamin en hefur verið mjög þæg og meðfærileg það sem komið er. Afkvæmi: Skvísa er nú í eigu Sölva Freys og Ernu Rán. Skvísa fór undir Sinfjötla frá Ósi
![]() ![]() Gulldeppla frá Árbakka Gulldeppla bættist við í hryssuhópinn árið 2009. Gulldeppla er þægileg í umgengi og falleg á litin. Hún er ótamin en alveg þæg og auðveld í meðhöndlun. Flettingar í dag: 94 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 247 Gestir í gær: 41 Samtals flettingar: 128417 Samtals gestir: 27357 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:31:45 |
Vafraðu umNewest
Our most interesting sale horses at the moment...
For more information Click here.
Vertu velkomin í sveitina okkar You are welcome to our farm "Try before you buy" more...on riding tours Sóldalhestar Nafn: Sigríður Sóldal og Jóhann IngiFarsími: 8676206Tölvupóstfang: soldalhestar@soldalhestar.comHeimilisfang: MeðalheimurStaðsetning: 601 AkureyriHeimasími: 4524106Tenglar
Topplistinn Þýskur hestamarkaður
Helluskeifur Gaurarnir, festingar fyrir hestakerrur og tjaldvagna Kíkið hér |
||||